Tuesday, February 23, 2010

Vöknuð….

Foreldraviðtal á eftir vegna þess yngsta. Hann er ekkert par hrifinn að þurfa að fljóta með…skal nú samt láta sig hafa það. Miðjan í Keflavíkinni, veit ekki með væntanlega heimkomnu ? Ég andlega sem líkamlega búin á því og best geymd undir rúmi, eða þannig :) . Þarf að fara eftir viðtal og “finna” geymsluna mína, festa tromluna í þvottavélinni og klára að “fiffa” eitt-tvö stykki tölvur. Merkilegir þessir þriðjudagar, það er hægt að finna sér eitthvað að gera annað en BLOGGA !!!! :)

Over and out.

Posted by Vala in 11:50:01 | Permalink | Comments Off

Friday, February 19, 2010

Alveg met.

Held að þetta sé barasta met í bloggheimum…rétt tæp tvö ár frá síðasta bloggi.Hmm.

Held að það eigi ekkert sérlega vel við mig að bogga þar sem ég gleymi alltaf að ég sé með blogg :) .

Ekki eins og það sé svona lítið sem gangi á, dísess bæði í þjóðfélaginu og heima fyrir. Sá elsti er fluttur í Keflavíkina og farinn að vinna þar, með stuttu stoppi á Stokkseyri og vinnu á Kumbaravogi. Miðjan mín búin að testa Laugar og komin heim í atvinnuleysið, sá yngsti á svipuðum slóðum ef horft er framhjá eilífum kærustuskiptum, meina… sumir láta svona með sokkana sína en …ok elska þau mestast :) . Stubburinn minn alltaf jafnmikill Stubbur og ég…ja jú ég er bara ég enn þó merkilegt sé, að vísu búin að skipta um íbúð aftur og var náttla að því svona rétt fyrir jólin. Sumir láta sér nægja jólahreingerningu en þetta er mun þægilegri máti á hlutunum, eða þannig.

Over and out for now.


Posted by Vala in 16:31:53 | Permalink | Comments Off

Tuesday, April 29, 2008

Hugrenningar eða…….

Hvers vegna spyr fólk ” hvað ert þú að gera með bloggsíðu ef þú skrifar aldrei neitt þar”. Einföld spurning sem gefur í raun af sér aðra eins einfalda spurningu “til hvers að vera að blogga nema þú hafir eitthvað til að blogga um” ?
En allavega hér er ég, ekki orðin verslunnarstjóri tölvulistans, á bið eftir bakaðgerð og býsnast til að blogga um ÞAÐ….lol.
Hef heyrt svolítið af því núna að “allt sé fertugum fært” tilefnið er náttla það eftir 4 daga verð ég semsagt fertug. Kannski verður mér eitthvað meira fært við að ná þeim aldri, kannski er mér ekkert fært fyrr en eftir fertugt, halló fólk hvað er almenningur að gera fram að fertugu???
Er mér eitthvað minna fært í dag en eftir 4. daga? hver veit en einhvernveginn efast ég um það samt.
Önnur spurning sem hefur verið mér ofarlega í huga síðustu daga (kannski er það aldurinn)…en hver er ÉG ?  Er ÉG “bara” einstæð móðir með 3. börn, öryrki, afkomandi kulda, misnotkunnar og áfengis, eða er ég eitthvað meira ?
Kannski er það þannig að mér hafi verið “fært” að vera eitthvað annað, en verði það ekki fyrr en eftir fertugt !
Draumar, langanir og þrár sem veltast um og fá ekki kraft eða þýðingu fyrr en eftir 40 ár ?
Hljómar fáránlega en samt er eins og það sé eitthvað vit í því.
Óskaplega hlakka ég til 3 maí þegar mér verður “allt” fært….lol
En svona ykkur að segja þá held ég að einmitt vegna þess að hvers afkomandi ég er, þá er ég bara einmitt ég.
Gleðilegt sumar.

Posted by Vala in 11:50:00 | Permalink | Comments (3)

Friday, March 28, 2008

Ögrun hátíðarbloggs

Hef verið að spá í svolitlu sem afi sagði svo oft; ef hann væri ekki bjartsýnn væri hann löngu dauður !
Ástæða spámennsku minnar er sú að ég rak augun í auglýsingu frá tölvulistanum þess eðlis að þeim vantaði bæði afgreiðslumann sem og verslunnarstjóra í verslun sína hér á svæðinu, í eftirfylgni var svo viðtal við fráfarandi verslunnarstjóra þar sem hann lísti áhyggjum sínum af því að líklega fengist engin héðan til að sinna starfinu. Mín náttla í einhverju bjartsýniskasti ákvað að ögra þeirri fullyrðingu hans og sótti óðar um bæði störf. Gleymdi þessu svo óðara aftur og hélt bara áfram með mitt daglega. Þegar síminn hringdi kannaðist ég ekkert við númerið og hélt að það væri einn af þessum krökkum sem eiga verulega erfitt með að láta þann yngsta í friði þannig að ég var ekkert voðalega hress þegar ég reif upp tólið og svaraði, ekki minnkaði pirringurinn þegar spurt var eftir Fjólu en sagði samt JÁh !
Manneskjan sem kynnti sig hringdi engum bjöllum fyrr en hún minntist á actio og þar með var allt loft úr minni.Sama dag fékk ég e-mail frá viðkomandi aðila þar sem´mér var þakkað fyrir að sækja um stöðu afgreiðslumanns en búið væri að ráða í þá stöðu, mætti svo í viðtal vegna verslunnarstjórastöðunnar í gær sem gekk bara mjög vel, sérlega þar sem umsóknin var send sem einhver ögrun…lol.
Svo er bara að bíða og sjá………..
Ein sem elskar áskoranir og bloggar ekki bara á hátíðisdögum!

Posted by Vala in 10:30:05 | Permalink | Comments (3)

Wednesday, March 19, 2008

Hátíðar ?

Hmm virðist stefna í að vera nokkurskonar hátíðarblog hjá mér.
Páskar á næsta leiti og allt í gúddí.
Sá elsti er farin að vinna á leikskóla, sem liðveisla og passar svo auk þess tvö kvöld í viku ! Sko minn, um páskana er hann svo að koma með hinn helmingin í mat í annað skipti…..gaman, sá hinn sami er nýkomin frá úttlöndum og ætlar að færa “tengdamömmu” sinni eitthvað sniðugt.
Miðjan mín er ekki enn farin að vinna og virðist ekkert benda til þess að það verði neitt á næstunni.
Sá yngsti er afskaplega upptekinn af því að vera STRÁKUR þessa dagana…..lol sem er bara nokkuð gaman að upplifa með honum, þar sem sá elsti fór aldrei gegnum það tímabil. Jepplingurinn fær sko ekki frið þessa dagana frekar en ég þar sem sá elsti er komin með æfingarakstur.. nú er sko farið allra sinna ferða á jeppling. Það er farið að vora og þar með er eirðarleysið farið að gera vart við sig hjá mér þó ég eigi afskaplega erfitt með að keyra þessa dagana, bæði náttla vegna þess elsta og bakverkja.
So happy easter everybody.

Posted by Vala in 11:47:29 | Permalink | Comments (1) »

Monday, January 7, 2008

Jóla jóla…stressflutningar

Hátíðarnar liðnar og ljósin farin. Sá elsti í atvinnuleit og miðjan mín líka.
Ég sit eins og klessa og spái í hvort ég nenni að flytja aftur um mánaðarmótin….fór á fund félagsráðgjafans míns til að undirrita leigusamning og fékk þá spurningu. Sá elsti var með mér og hann hélt í raun að félagsráðgjafinn væri endanlega týndur í geðveiki jólastressins. Staðreyndin er sú að hugsanlega er íbúð að losna sem okkur verður frjálst að vera í þar til okkur dettur í hug, að vera ekki lengur. Við erum að spá í þessum málum, feginn að vita að félagsráðgjafinn er ekki jólastresstýndur !

Posted by Vala in 22:12:01 | Permalink | Comments Off

Sunday, December 30, 2007

Betra seint en aldrei….

Hmm áttaði mig á að það er að verða svolítill tími síðan ég bloggaði síðast.
Skruppum til Akureyrar á jeppling 10. desember að sækja þann elsta. Hann var að útskrifast með stæl. Lögðum af stað heimleiðis eftir að hafa stoppað hjá ömmsu og hlustað á veðurspá þar sem reiknað var með stormi um mest allt land. Var svosem allt í lagi alveg þar til við komum í Borgarnes um hálf tólf um kvöldið. Lögðum okkur  í skjól og horfðum á klæðningar og fánastangir svífa hingað og þangað. Upplifðum okkur eins og í Twilight zone. Upp úr klukkan tólf fóru 4 bílar af stað undir hafnarfjallið þar sem vindhraði fór upp yfir 62 metra í hviðunum og biðum við aðeins til að sjá hvort þeir kæmu til baka eða hvort björgunnarsveitin færi á eftir, þar sem ekkert slíkt skeði ákvað ég að leggja í hann. Yfir Borgarnesbrúnna og að afleggjaranum inn í sveit, þar stoppaði ég bíl sem var að koma undan fjallinu og var þar miðaldra maður á ferð sem hálf kastaði sér út úr bílnum og lagðist á bæn til að þakka fyrir að hafa komist ómeiddur/fokinn frá fjallinu…. þrátt fyrir það ákvað ég að láta slag standa þar sem fyrri bílarnir komust allir heilir frá þessari háskaför að sögn þess miðaldra. Vá hef alltaf verið frekar viðkvæm fyrir að láta lyfta mér þar sem ég hef alltaf efast um lyftigetu viðkomandi…… viti menn þurfti ekki nema um 63. metra vindhraða til að lyfta mér og jeppling og öllum þrem unglingunum mínum svo ekki sé minnst á tjúann okkar  hann Stubb! Miðvikudaginn 12. fengum við svo lyklana að nýju íbúðinni og þá varð sko kátt í kitrunni. Nema hvað þar sem viðkomandi (ég) á í hlut þá gat náttla ekki verið að það gengi klakklaust fyrir sig enda kom upp úr kafinu að þessir lyklar pössuðu bara alls ekki að þessari íbúð og fór því stór hluti kvöldsins í að hafa upp á fasteignasalanum og fá rétta lykla sem hafðist þó fyrir rest og við gátum byrjað að flytja. LOKSINS!!!!
Vorum rétt að verða búin að koma okkur fyrir þegar aðfangadagur brast á.
Þessi jól voru bara með þeim gleðilegri.
So Gleðileg jól alle sammen.
Posted by Vala in 15:36:41 | Permalink | Comments (1) »

Wednesday, December 5, 2007

Stutt saga löng, með vott af seinheppni.

Sá mér ástæðu til að hringja í Sys og minn fyrrverandi um daginn til að vera viss um að ég væri í raun ekki svoooo seinheppin. Svörin voru í samræmi við íbúðarstöðu mína í dag. Fékk þær frábæru fréttir að það væri búið að finna fyrir mig íbúð sem ég fengi bara sem fyrst, ætti bara eftir að setja gólfefni og svo gæti ég flutt, þetta var kringum 23 nóv. Ég þetta litla hress með stöðu mála. Fékk afhenta lyklana að geymslunni 3. dögum seinna með þeim skilaboðum að það ætti bara eftir að skipta út tveim veggplötum sem yrði gert strax daginn eftir, en mér væri velkomið að flytja dótið mitt bara passa að setja ekki upp við téðan vegg. Ég af gæsku minni ákvað að gefa þeim séns á að skipta út plötunum, án þess að vera á kafi í drasli. Kvöldið eftir leit ég við í geymsluna og bjóst við að geta farið að flytja, lítið vissi ég. Veggurinn var enn á sínum stað en vissulega búið að losa um allar skrúfur þannig að bara átti eftir að kippa plötunum frá og setja nýjar upp. Ég ákvað með svolitlum pirringi að gefa þeim tvo daga enn en þá myndi ég byrja að flytja hvað sem tautaði. Tveim dögum seinna voru plöturnar vissulega komnar á sinn stað og meira að segja búið að mála aðra þeirra, og geymslan FULL af drasli ! Ég hringdi óðara í viðklomandi aðila sem sá um geymslumál og lýsti mínum förum ekki sléttum. Svörin voru að þau sem ættu plássið við hliðina hefðu fengið að setja dótið sitt þarna inn því það þyrfti að laga gólfið í þeirra geymslu !
Það lá við að ég urraði. Svona vinnubrögð tíðkast greinilega á fleiri stöðum en mínu heimili, hlaupið úr einu í annað, og skilið eftir hálfklárað. Urrr. Ég klagaði í félagsmst. þar sem þetta var allt í gegnum þá ágætu stofnun og fékk þær ljómandi góðu fréttir að það hefði verið að losna íbúð hjá þeim sem ég gæti fengið og jafnvel byrjað að flytja inn um helgina (þetta var á föstudegi 30. nóv). Félagsráðgjafinn kom færandi hendi með lyklana og bauð mér að skoða ég gæti þess vegna byrjað að flytja í geymsluna þarna. Ég varð þetta litla kát og lofaði að láta vita daginn eftir hvernig mér litist á og hvort mikið þyrfti að taka í gegn. Húrraði krökkunum út í bíl og mætti á svæðið til að skoða. Við vorum öll hrifin af þessari íbúð og hlökkuðum til að flytja, loksins laus úr þessu rugli. Daginn eftir ákvað ég að bíða (en af gæsku minni) og leyfa Félagsráðgjafanum að sofa út þar sem hún hafði verið á leið í boð kvöldið áður. Um klukkan eitt hringir svo síminn. Vala, ertu búin að skoða? Félagsráðgjafinn virtist eitthvað lasinn. Hah þunn hugsaði ég með mér. En málið var bara það að viðkomandi íbúð sem við skoðuðum og vorum í startholum að flytja í var bara alls ekki á þeirra vegum og Félagsráðgjafinn hafði bara ekkert leyfi til að láta mig hafa lyklana þar sem eigendurnir voru sjálfir að fara að flytja inn. Ég veit ekki hvor var meira miður sín Félagsráðgjafinn eða ég ! Í gær hringdi ég svo til að biðja um að geymslan yrði losuð svo ég gæti flutt inn í hana og var það ekkert mál T.G. Skrapp í gærkveldi og það passaði það var búið að losa geymsluna svo ég hugsaði mér gott til glóðarinnar að vera dugleg daginn eftir. Vaknaði hress með það á tilfinningunni að loksins væri eitthvað að ganga upp hjá mér og fyllti jeppling af kössum. Fyrrverandi kom og hann og dóttir mín rendu með bílinn til að losa hann í geymsluna. Hmm, eins og vanalega, lítið vissi ég. Komu aftur skömmu síðar með jeppling enn fullann af kössum. Það var nýbúið að mála gólfið í geymslunni og yrði ekki hægt að flytja fyrr en í fyrsta lagi eftir sólarhring! Þannig að í dag bíð ég og vona að geta flutt áður en mér verður hent með valdi út úr þeirri íbúð sem ég er í.

E.s Var reyndar eins og mig grunaði, búið að mála ganginn að geymslunum daginn eftir svo enn varð ég að bíða !
Posted by Vala in 14:09:32 | Permalink | Comments (2)

Friday, November 23, 2007

Kassagerfi.

Í mars flutti ég, núna þarf ég að flytja aftur. Safnaði að mér kössum en komst þá að því að við höfum búið meira og minna í þeim frá því í mars. Thank God. En skrítið þar sem flest er enn í kössum, (nema það allra nauðsynlegasta), hefur mig samt ekki skort neitt af því sem er þar?  Er maður kannski að sanka að sér dóti bara til að geta sagst eiga það? Neee held að við séum bara svona nægjusöm í seinni tíð….;)
Húsbóndinn á heimilinu (uppþvottavélin) bilaði hjá mér á mánudagskvöldið. Piffft ég brá mér í rafyrkjagerfið og reif hana í sundur, fór svo með rofann og keypti nýjan.
Kom heim með hann í gær og fór í gerfið, setti vélina (húsbóndann) saman aftur með nýjum startara og viti menn hann fór óðara að þvo upp. En sló samt einu sinni út áður svona til að leggja áherslu á goggunnarröðina. Ég sló náttla bara inn en dauðbrá þar sem um íbúðina hljómaði traktorssöngur…….ég stökk inn í eldhús og komst að því að ísskápurinn var eitthvað þreyttur á húsbóndanum og við það að gefast upp þar sem þetta var ekki í fyrsta skiptið sem húsbóndinn sló út! ARG.
Er að hugsa um að sleppa rafyrkjagerfinu, skella mér í kaupæðisgerfið og versla bara nýjan!!!! Svo er sagt að við (kvenfólkið) séum dýrar í rekstri.
Posted by Vala in 08:22:25 | Permalink | Comments (2)

Friday, November 16, 2007

Lukkuláki.

Ég skal bara segja ykkur það. Jólasveinninn var bara snemma á ferðinni þetta árið. Ég þarf ekki lengur að velja úr niðurföllum (ræsum) fyrir jólatréð mitt þar sem ég fékk að vita það í morgun að ég yrði ekki á götunni um jólin. Sorry ræsisrist ekkert jólatré þetta árið! Jepplingurinn minn á nýjum negldum dekkjum og klár í norðurferð til að sækja þann elsta í desember. Sparaði á annað hundrað þúsund þar! Vá svo er sagt að ég sé seinheppin. Kannski er samt eitthvað til í því þar sem ég er alltaf á síðustu stundu með að “detta” í lukkuna.
Þarf að færa ákveðinni manneskju jólasveinaskotthúfutetur Laughing.
Takk fyrir mig og gleðileg jól.
Posted by Vala in 12:33:41 | Permalink | Comments (2)